Allir nemendur þurfa Íslykil eða rafræn skilríki
Garðaskóli nýtir námsumsjónarkerfið í daglegt starf skólans og samskipti við heimili. Nemendur og aðstandendur þeirra hafa aðgang að sömu upplýsingunum í kerfinu en þó í gegnum mismunandi notendareikninga.
Rafræn skilríki fyrir einstaklinga undir 18 ára aldri eru einungis veitt í viðurvist foreldra/forsjáraðila í bönkum og sparisjóðum.
Íslykil er hægt að sækja um í gegnum Þjóðskrá Íslands á https://www.island.is/islykill/. Valið er á milli þess að fá Íslykilinn sendan í heimabanka notanda eða með pósti á lögheimili viðkomandi. Við fyrstu innskráningu þarf að breyta Íslyklinum í annað lykilorð sem notandinn velur. Ef lykilorðið tapast þarf að sækja um nýjan Íslykil.
Við hvetjum nemendur og aðstandendur til að skoða þetta mál strax svo ekki verði tafir á því að viðkomandi komist í Innu við skólabyrjun.
Hægt er að nálgast leiðbeiningar um Íslykilinn á heimasíðu Garðaskóla.