Innritun í 8. bekk stendur yfir
16.03.2015 23:00
Innritun nemenda í 8. bekk skólaárið 2015-2016 stendur yfir frá 2.-25. mars. Sótt er um skólavist í Garðaskóla á Minn Garðabær. Kynningarfundir fyrir forráðamenn og nemendur verða haldnir:
- miðvikudaginn 18. mars kl. 17.30-18.30
- fimmtudaginn 19. mars kl. 17.30-18.30
Nánari upplýsingar um skólann og innritun má lesa á vefnum. Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu skólans í síma 590 2500 og hjá deildarstjóra 8. bekkjar, Helgu Maríu Ólafsdóttur.
Við innritun í 8. bekk geta nemendur skilað inn óskum um tvo vini sem þeir vilja vera með í bekk. Skólinn tryggir að a.m.k. annar aðilinn verði í sama bekk. Vinavalsblöð má prenta út hér að neðan og skila inn á skrifstofu Garðaskóla: