Fyrsti skóladagur ársins 2023
Skólastarf hefst á nýjan leik eftir jólafrí mánudaginn 2. janúar. Dagurinn er merktur sem uppbrotsdagur í skóladagatali og er því ekki um hefðbundinn skóladag að ræða. Í skóladagatali heitir dagurinn Heilsueflingardagur - andlega heilsa og í ár ætlum við að einblína á svefn og mikilvægi hans, enda er er það undirstaða góðrar andlegrar heilsu af fá nægan svefn. Allir nemendur fá fyrirlestur frá Betri svefn og í kjölfarið eru umræður og úrvinnsla í umsjóanrstofu.
Dagskrá nemenda þennan dag er eftirfarandi:
8. bekkur
9:00 Mæting í umsjónarstofu
09:10 Fyrirlestur í Gryfjunni
10:00 Umræður og úrvinnsla í umsjónarstofu
11:00 Skóladegi lýkur
9. bekkur
10:00 Mæting í umsjónarstofu10:10 Fyrirlestur í Gryfjunni
11:00 Umræður og úrvinnsla í umsjónarstofu
12:00 Skóladegi lýkur
10. bekkur
11:00 Mæting í umsjónarstofu
11:10 Fyrirlestur í Gryfjunni
12:00 Umræður og úrvinnsla í umsjónarstofu
13:00 Skóladegi lýkur
Kennsla hefst svo samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 3. janúar.