Niðurstöður úr skuggakosningum Garðaskóla
24.09.2021 15:31
Sem hluta af lýðræðislegu uppeldi nemenda voru haldnar skuggakosningar fyrir komandi Alþingiskosninar. Í hverjum bekk voru skipaðir nemendur í kjörstjórn og eftirlitsmaður til að fylgjast með að talið væri rétt og að ekkert óeðlilegt ætti sér stað. Niðurstöður kosninganna liggja nú fyrir og voru eftirfarandi:
Ábyrg framtíð | 2% |
Flokkur fólksins | 3% |
Framsóknarflokkurinn | 6% |
Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn | 3% |
Miðflokkurinn | 5% |
Píratar | 10% |
Samfylkingin | 9% |
Sjálfstæðisflokkurinn | 28% |
Sósíalistaflokkur Íslands | 4% |
Viðreisn | 14% |
Vinstirhreyfingin grænt framboð | 11% |
Auðir seðlar og ógildir | 5% |
Svo er bara að bíða og sjá hvort að niðurstöður nemenda Garðaskóla verði í takt við niðurstöður þjóðarinnar.