Hvaða próf? Hvaða stofa?
26.05.2020 17:14
Lokapróf í 10. bekk eru haldin dagana 27.-29. maí og í 8. og 9. bekk föstudaginn 29. maí, sjá frétt.
Upplýsingar um í hvaða stofum nemendur taka próf hanga á göngum skólans.
Við hvetjum nemendur til að hvílast vel fyrir prófadag og borða góðan morgunmat því það styður við einbeitinguna í krefjandi verkefnum.
Í Garðaskóla leggjum við áherslu á vandaða próftöku og nemendur þurfa að fylgja prófreglum skólans (skoða prófreglur (PDF)). Helstu reglur eru þessar:
- Mæta tímanlega.
- Þögn á að vera í prófstofu svo að allir hafi frið til að einbeita sér að prófinu.
- Snjalltæki eru ekki leyfð inni í prófstofum.
- Skólatöskur og yfirhafnir á að geyma í skápum, ekki inni í prófstofum.
- Ef nemandi er staðinn að svindli í prófi er honum vísað úr prófstofu til stjórnenda og fær sjálfkrafa einkunnina D á prófinu. Foreldrar eru ávallt upplýstir.
Gangi ykkur vel!
Starfsfólk Garðaskóla
Myndin með fréttinni er fengin á vefnum https://www.freepik.com/free-photos-vectors/exams