Skólamatur: Viðbrögð vegna COVID-19
Kæru foreldrar og forráðamenn.
Til að bregðast við tilmælum Almannavarna varðandi COVID-19 höfum við hjá Skólamat ehf. í samráði við skólastjórnendur gripið til eftirfarandi ráðstafana:
-
Hætt hefur verið við sjálfsskömmtun. Í því fellst að öllum mat og meðlæti er skammtað af starfsmanni á disk nemenda.
-
Vegna breytinga á sjálfsskömmtun verður matseðli breytt og hann einfaldaður að hluta.
-
Ýmsar breytingar hafa einnig verið gerðar við afgreiðslu til þess að auðvelda framkvæmd, en ávallt er farið eftir ráðleggingum yfirvalda.
-
Við minnum á mikilvægi handþvottar og sótthreinsunar og að fylgja leiðbeiningum landlæknis á www.landlaeknir.is
Þessar ráðstafanir eru einungis tímabundnar. Það er von okkar að hægt verði að breyta sem fyrst í hefðbundið verklag.
Með von um jákvæð viðbrögð og skilning.
Kær kveðja,
Starfsfólk Skólamatar ehf