Góð byrjun á Gagn og gaman dögum
Veðrið lék við hópa Garðskælinga sem söfnuðust saman í morgun í hópastarf þvert á bekkjadeildir í nafni Gagn og gaman. Sumir fóru í skálaferð, aðrir í bæjarferð og enn aðrir elduðu rjúpu og dádýr í heimilisfræði. Margir komu einnig við á kaffihúsi nemenda og fengu sér vöfflu á einhverjum tímapunkti.
Í FIFA og Playstation hópnum fór fram hörð keppni í fótbolta milli nemenda í öllum þremur árgöngunum. Skipt var í tveggja manna lið sem spiluðu í nafni enskra úrvalsdeildarliða og leikjum var varpað upp á tjald svo allir gætu fylgst með. Að sjálfsögðu var gríðarleg spenna í loftinu! Sjö lið öttu kappi og fór svo að lið Liverpool fór með sigur af hólmi en þeir tveir nemendur sem skipuðu það lið sjást hér sitjandi hægra megin á miðri myndinni, Egill Grétar og Bjarki Snær.
Í myndasafni skólans er hægt að sjá myndir frá fjölbreyttu hópastarfi.