Forvarnarvika Garðabæjar 2.-6. október - Er síminn barnið þitt?
Dagana 2.-6. október verður haldin forvarnavika í leik- og grunnskólum Garðabæjar. Þema vikunnar er snjalltækjanotkun, líðan og svefn undir slagorðinu "Er síminn barnið þitt?". Í vikunni verður boðið upp á fræðslu þessu tengt fyrir foreldra í Garðabæ, starfsfólk skólanna og nemendur. Undirbúningur fyrir forvarnavikuna hefur staðið yfir frá því í vor og bæði starfsfólk og nemendur hafa komið að undirbúningnum.
Viðburðir í Garðaskóla í tengslum við forvarnaviku
Nemendur Garðaskóla munu miðvikudaginn 4. október taka þátt í umræðuverkefnum í umsjónarhópum sínum um snjalltæki og áhrif þeirra. Af þeim sökum verður tvöfaldur umsjónartími þann morguninn og hefðbundin faggreinakennsla í 2. kennslustund fellur niður.
Fimmtudaginn 5. október munu nemendur í 9. og 10. bekk fá tækifæri til að hlusta á Eyjólf Örn Jónsson sálfræðing um ofnotkun tölva og snjalltækja.
Opinn fræðslufundur fyrir foreldra – fimmtudaginn 5. október kl. 20 í Sjálandsskóla
Fimmtudaginn 5. október kl. 20:00 verður haldinn opinn fræðslufundur fyrir foreldra í húsnæði Sjálandsskóla, við Löngulínu. Á fundinum verður fjallað um umgengni við snjalltæki og hvað beri að varast. Á fundinum flytja Björn Hjálmarsson, barna- og unglingageðlæknir, og Arna Skúladóttir, hjúkrunarfræðingur, erindi. Yfirskrift erindis Björns Hjálmarssonar er ,,Snjalltækjanotkun barna og unglinga – er eitthvað að óttast?“, þar sem hann fjallar um þær miklulífstílsbreytingar sem orðið hafa hjá börnum og unglingum með tilkomu nýrrar tækni og hvort einhverjar ógnir lúri í farvatninu. Arna Skúladóttir, barnahjúkrunarfræðingur og sérfræðingur í svefni og svefnvanda barna, ræðir um hvað hefur áhrif á svefn barna og unglinga, t.d. skipulag á daglegu lífi, venjur foreldra og persónugerð barnsins. Léttar veitingar verða í boði á fundinum og allir eru velkomnir.
Starfsfólk Garðskóla hvetur forráðamenn til að fylgjast vel með samskiptum unglinganna sinna, bæði í raunheimi og í snjallheiminum.