Skólaslit hjá 8. og 9. bekk
Margt var um manninn við skólaslit nemenda í 8. og 9. bekk í morgun. Boðið var upp á tónlistaratriði hjá báðum árgöngum en auk þess fóru Brynhildur skólastjóri og Ásta Huld deildarstjóri nemenda yfir veturinn og hvað væri framundan næsta skólaár.
Eins og venja er fengu nokkrir nemendur í hvorum árgangi sérstaka viðurkenningu fyrir framúrskarandi mætingu og framúrskarandi námsárangur. Þau leiðinlegu mistök voru gerð að við útskrift 9. bekkinga fékk Jóhann Baldur Jóhannsson í 9. KS ekki viðurkenningu fyrir framúrskarandi ástundun. Það var þó bætt úr því hið snarasta eftir athöfn og Jóhanni Baldri afhent bæði viðurkenning og blóm fyrir árangurinn.
Nemendur sem fengu verðlaun voru:
8. bekkur
Davíð Óttarsson 8. RÁG - framúrskarandi ástundun
Dagmar Íris Hafsteinsdóttir 8. RÁG - framúrskarandi ástundun
Helga Margrét Ólafsdóttir 8. RBÞ - framúrskarandi námsárangur
Magnús Stephensen 8. HT - framúrskarandi námsárangur
9. bekkur
Eysteinn Arnar Waagfjörð 9. KFS - framúrskarandi ástundun
Jóhann Baldur Jóhannsson 9. KS - framúrskarandi ástundun
Sara Ellertsdóttir 9. KS - framúrskarandi námsárangur
Róbert Orri Ragnarsson 9. SSH - framúrskarandi námsárangur