Listadagar í Garðaskóla
Listadagar í Garðaskóla er liður af dagskrá Listadaga barna og ungmenna í Garðabæ sem haldnir eru annað hvert ár í lok apríl. Að þessu sinni var ákveðið að brjóta upp hefðbundið skólastarf í Garðaskóla í þrjá daga, 25.-27. apríl, fyrst með Jafnréttisþingi og svo hópadagskrá undir formerkjum Listadaga.
Hver umsjónarhópur fór á milli stofa og tók þátt í margvíslegu starfi, sem allt tengdist listum á einhvern hátt. Má þar nefna „Litur og vindur“, „Söngur og tónlist“, „Ljóð“ og „Origami“. Allir hópar höfðu það verkefni að taka upp og klippa saman myndband sem sýndi vinnu þeirra á Listadögum. Hver árgangur horfði svo á sín myndbönd eftir hádegi á miðvikudaginn.
Lokaviðburður Listadaga Garðaskóla var árshátíðin sem fram fór í íþróttamiðstöðinni Ásgarði með pompi og prakt á miðvikudagskvöldið.
Hægt er að sjá myndir frá Listadögum í myndasafninu.