Forvarnardagurinn 1. október
Forvarnardagurinn var haldinn í níunda sinn þann 1. október 2014. Hann er haldinn að frumkvæði forseta Íslands sem fékk í lið með sér: Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands og Bandalag íslenskra skáta. Með deginum er verið að koma á framfæri þremur heillaráðum sem rannsóknir hafa sýnt að geta stuðlað að því að ungmenni verða síður áfengi og fíkniefnum að bráð:
- Samvera
- Íþrótta- og tómstundastarf
- Hvert ár skiptir máli
Dagskráin miðast við 9. bekk og samanstóð að þessu sinni af nokkrum verkefnum. Starfsemi íþrótta- og æskulýðsfélaga var kynnt stuttlega, umræðuhópar nemenda fjölluðu um spurningar sem tengjast heillaráðunum þremur og sýnt var myndband sem framleitt var í tilefni dagsins. Að lokum var nemendum bent á ratleik á netinu sem þeir geta tekið þátt í og þar eru vegleg verðlaun í boði.
Hér að neðan má lesa sýnishorn af niðurstöðum í umræðuhópum 9. bekkinga í Garðaskóla:
Spurning: Hverjar telur þú helstu ástæður þess að krakkar taki þátt í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi?
- Því þeir hafa áhuga á því að hitta aðra krakka, skemmta sér, hreyfa sig, gera eitthvað sem þeim finnst skemmtilegt.
- Svo það sé léttara að vita hvernig maður á að hreyfa sig.
Spurning: Hvernig íþrótta- g æskulýðsstarf mynduð þið vilja sjá þar sem fjölskyldan gæti tekið þátt saman?
- Við teljum að hestamennska sé skemmtileg íþrótt fyrir alla fjölskylduna.
- Fótbolti, sund, spil, keila,skautar, skíði.
Spurning: Er eitthvað sérstakt sem hefur vakið athygli þína í tengslum við íþrótta- og æskulýðsstarf undanfarið?
- Fjölskyldur eru meira núna byrjaðar að stunda fleiri íþróttir saman, meira en áður.
- Nei, ekkert sérstakt. Íþróttir eru orðnar fjölbreyttari.
Spurning: Hvað mynduð þið vilja gera oftar með fjölskyldunni?
- Við myndum vilja borða brunch oftar með fjölskyldunni. Brunch er góður matur borðaður um hádegi.
- Fara í ferðalög og útilegur. Fara í bíó. Út að borða. Hreyfa sig saman.
Spurning: Af hverju ætti fjölskyldan að verja sem mestum tíma saman að þínu áliti?
- Styrkir sambandið á milli fjölskyldumeðlima. Að unglingar vita að einhverjum þykir vænt um þá og eru með stuðning.
- Minni líkur á að maður drekki.
Spurning: Hvað getið þið gert til að vera meira með fjölskyldunni?
- Vera minna með vinum.
- Skipuleggja fjölskyldukvöld.
Spurning: Hvað græðir þú á því að drekka ekki áfengi á unglingsárunum?
- Það er mjög óheilbrigt að byrja að drekka ungur. Þú getur einbeitt þér betur. Maður getur lent í áfengisvandamálum í framtíðinni.
- Heilinn þinn getur þróast betur. Þú tekur betri ákvarðanir. Þú getur gert heimskulega hluti þegar þú drekkur.
Spurning: Hvaða stuðningur telur þú að sé bestur til að byrja ekki að drekka á unglingsárunum?
- Æfa íþróttir, forvarnir, góðir vinir og fjölskylda.
- Að hanga ekki með krökkum sem eru í þessu rugli. Betra líf og gott heimilislíf.
Spurning: Hvaðan kemur þrýstingur á unglinga til að hefja áfengisneyslu að þínu mati?
- Að eldri krakkar pressa á þá yngri og líka vinsældin þannig að þeir halda að þetta sé svo nett.
- Frá netinu, frá vinum, frá öðrum krökkum.