Heilsueflandi skóli
Nýverið fóru fulltrúar úr heilsueflingarnefnd Garðaskóla á ráðstefnu Landlæknisembættisins um heilsueflingu í grunnskólum. Svandís Ríkharðsdóttir íþrótta- og stærðfræðikennari skrifar pistil af því tilefni:
Í byrjun september fór undirrituð og Kristján Rafn heimilisfræðikennari á ráðstefnu sem bar nafnið Heilsueflandi grunnskóli. Þar hittum við kennara frá öðrum grunnskólum á landinu. Það var mjög gaman að hitta aðra kennara og sjá hvað þeir hafa verið að gera til að halda nafni heilsueflingar á lofti. Margir grunnskólar eru að byrja í verkefninu en aðrir hafa verið í þróunarstarfi í nokkur ár.
Við í Garðaskóla erum að sjálfsögðu heilsueflandi grunnskóli og í fyrra fórum við af stað með fyrsta flokkinn okkar „mataræði“. Heilsueflingu má greina í átta þætti en yfirleitt er talað um fjóra aðalþætti: Mataræði, hreyfingu, geðrækt og lífsleikni.
Á þessu skólaári erum við að vinna með hreyfingu. Hreyfing og næring eru nátengdir þættir og því er skemmtilegt að segja frá því að í Garðaskóla er boðið upp á fjölbreytt úrval valgreina sem hlúa að þessum þáttum. Til dæmis vil ég nefna valfögin: Að rækta líkamann, slökun og jóga, skólahreysti og boðið til veislu. Auk þess er fjallað um málefni tengd heilsueflingu í heimilisfræði í 8. bekk, umsjón og fleiri skyldunámsgreinum.
Skólabragur okkar og umhverfi er jákvætt og það er mikilvægt að heilsa og hreyfing verði hluti af menningu okkar hér í Garðaskóla.
Heilsukveðja Svandís Ríkharðsdóttir
Nánar má lesa um heilsueflingu í Garðaskóla hér á vef skólans.