Skólahald og skíðaferðir - viðbrögð við veðráttu
06.03.2013 10:05
1. viðbragðsáætlun vegna óveðurs
2. skíðaferð 8. bekkinga er aflýst
3. beðið frétta um framvindu á skíðaferð 9. og 10. bekkinga
1. Búið er að virkja viðbragðsáætlun vegna óveðurs á höfuðborgarsvæðinu. Starfsfólk skólans heldur uppi því starfi sem nú er í gangi í skólanum til kl. 13.00 og í kjölfar þess fara nemendur heim. Við biðjum foreldra um að vera í sambandi við börn sín, sækja þau ef mögulegt er og fylgjast með að þau komist heim á öruggan hátt. Starfsfólk skólans mun ekki hleypa nemendum út úr húsinu nema það viti að þeir hafi gert ráðstafanir um heimferðina í samráði við foreldra. Skólinn verður opinn og starfsfólk á vakt þar til allir eru komnir í örugga höfn.
Öllum nemendum verður boðinn matur í hádeginu. Matsalan er opin fyrir þá sem geta nýtt sér hana og skólinn og Garðalundur bjóða öllum pizzu.
2. Vegna veðurs hefur skíðaferð 8. bekkinga verið aflýst. Skólinn og Garðalundur munu í staðinn skipuleggja skíðadag við fyrsta tækifæri. Nemendur geta skilið farangur eftir í skólanum á meðan veðrið er jafn slæmt og raun ber vitni. Á morgun, fimmtudag, hefst kennsla skv. stundaskrá í öllum 8. bekkjum. Viðbúið er að veður verði áfram slæmt og biðjum við foreldra um að fylgjast vel með fréttum á heimasíðu skólans og leggja mat á það hvort óhætt sé að senda börn í skólann.
3. Ákvörðun um hvenær verður lagt af stað í skíðaferð 9. og 10. bekkinga verður tekin eftir hádegi. Fararstjórar eru að meta stöðuna í samráði við rútubílstjóra ferðarinnar. Fundur með nemendum í þessum ferðum hefur verið boðaður á sal skólans kl. 13.00 í dag.
Þeir nemendur í 9. og 10. bekk sem ekki fara í skíðaferðir mæta að öllu óbreyttu í hópana sína í fyrramálið. Eins og áður segir er veðurspá slæm og foreldrar beðnir að meta sjálfir hvort óhætt sé að senda börn í skólann.
Kveðja stjórnendur Garðaskóla og Garðalundar

Kveðja,
fararstjórar