Garðaskóli í 3. sæti í Skólahreysti.
Á laugardaginn fóru úrslit Skólahreystis fram í Laugardalshöllinni þar sem lið Garðaskóla keppti við ellefu aðra skóla. Þegar litið var á árangur skólanna tólf í undankeppninni var lið Garðaskóla með sjöunda besta árangurinn, en við stefndum hærra og vonuðumst til þess að ná í topp fimm.
Það náðist og gott betur því þegar upp var staðið endaði Garðaskóli í þriðja sæti keppninnar í ár, sem er að sjálfsögðu stórkostlegur árangur. Þetta var í fyrsta skiptið í sögu Skólahreystis sem Garðaskóli komst í úrlist og því um sögulegan árangur að ræða hjá krökkunum.
Í verðlaun fengu krakkarnir bikar, verðlaunapeninga og 10.000 kr. gjafakort frá Landsbankanum auk þess sem nemendafélag skólans fékk 100.000 kr. gjafakort frá Landsbankanum.
Lið Garðaskóla var þannig skipað:
- Arna Brá keppti í armbeygjum og hreystigreipi
- Baltasar Guðmundur keppti í upphýfingum og dýfum
- Ísold og Róbert Krummi kepptu í hraðabraut
- Varamenn voru Atli Hrafn og Eva Margrét