Starf Garðalundar 2015-2016

Dagskrá félagsstarfsins í Garðalundi hefst formlega miðvikudaginn 9. september með opnu húsi. Skipulag dagskrár verður í höndum nemenda í félagsmálafræði og starfsmanna Garðalundar. Kvölddstarfið er ætlað nemendum í 8. til 10. bekk. Dagskráin er jafnan auglýst á heimasíðu Garðalundar, www.gardalundur.is og á fésbók nemendafélagsins, www.facebook.com/gardalundur. Stærri viðburðir sem hafa áhrif á skólastarf nemenda eru settir inn á skóladagatal þegar ákvörðun um skipulag liggur fyrir. Í nokkrum tilvikum fá forráðamenn póst þegar mikið liggur undir. Daglega er auglýsingum varpað á skjá í matsal eða þær birtar með öðrum hættti og ættu ekki að fara framhjá nemendum í dagsins önn.
Nánari upplýsingar um starf Garðalundar á komandi skólaári má finna hér.