Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Skólasetning Garðaskóla verður mánudaginn 24. ágúst.

12.08.2020 15:12
Nemendur í 8. bekk eiga að mæta kl. 8:30 á sal skólans. Að lokinni skólasetningu halda þeir í sína umsjónarstofu. Skóladegi þeirra lýkur kl. 14:30.

Nemendur í 9. og 10. bekk eiga að mæta kl. 10:00 á sal skólans. Að lokinni skólasetningu halda þeir í sína umsjónarstofu. Skóladegi þeirra lýkur kl. 11:00. 

Þriðjudaginn 25. ágúst mæta svo allir árgangar í skólann kl. 9:25 í sína umsjónarstofu og eru með umsjónarkennara sínum til 14:30. Miðvikudaginn 26. ágúst hefst svo kennsla samkvæmt stundaskrá.

Við minnum á að nemendur fá námsgögn hjá okkur, en þurfa sjálfir að koma með skólatösku undir námsbækur, pennaveski fyrir ritföng auk fatnaðar fyrir íþrótta- og sundtíma. Eldri nemendur nýta áfram þá vasareikna sem þeir hafa haft en nemendur í 8. bekk fá vasareikna afhenta í stærðfræðitíma.

Athugið að Skólamatur mun afgreiða heitan mat frá og með 25. ágúst. Forráðamenn þurfa að skrá nemendur í mataráskrift á www.skolamatur.is.

Í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu er foreldrum ekki boðið að koma á skólasetningu. Við erum að skoða möguleika á að sýna beint frá skólasetningunni og munum upplýsa um það þegar nær dregur. Kynningarfundi fyrir foreldra 8. bekkinga sem hefð hefur verið að halda á skólasetningardag er frestað um óákveðinn tíma.
Til baka
English
Hafðu samband