Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Fræðsla um lesblindu

10.01.2020 12:47
Fræðsla um lesblindu

Snævar Ívarsson framkvæmdarstjóri hjá Félagi lesblindra hefur í þessari viku farið inn í alla 8. bekki með fræðslu um lesblindu.  Snævar segir frá því  hvað felst í því að vera lesblindur og lýsir m.a. reynslu sinni sem lesblindur einstaklingur. Einnig kynnti hann fyrir nemendum hvernig  hægt er að nýta tölvur, síma og önnur snjalltæki til að lágmarka áhrif lesblindu á nám og starf.

Fræðslan hjá Snævari er liður í þróunarverkefni sem unnið er að í öllum skólum í Garðabæ og ber yfirskriftina ,,Láttu tæknina vinna með þér áfram“. Tilgangur verkefnisins er að fræða skólasamfélagið þ.e. kennara, nemendur og foreldra um lesblindu og áhrif hennar á nám og úrvinnslu og kenna lesblindum nemendum að nýta sér þau úrræði sem eru í boði til að þeir geti nýtt sér námshæfileika sína til fullnustu.

Þann 21. janúar nk. frá kennarar Garðaskóla sambærilega fræðslu og síðar á önninni verður fræðsla fyrir foreldra og verða foreldar lesblindra nemenda boðnir sérstaklega velkomnir. 

Til baka
English
Hafðu samband