Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Garðaskóli í ytra mati í nóvember

16.11.2018 11:11
Garðaskóli í ytra mati í nóvember

Nú á haustönn verður unnið að svokölluðu ytra mati á Garðaskóla. Það felst meðal annars í því að matsaðilar frá Menntamálastofnun munu dvelja hér í skólanum dagana 19.-23. nóvember og fara í vettvangsskoðanir í kennslustundir hjá öllum nemendum. Einnig taka  þeir rýniviðtöl við ýmsa hópa; starfsmenn, foreldra, nemendur og fulltrúa úr skólaráði. Því má fólk gera ráð fyrir að óskað verði eftir þátttöku einhverra í umræðuhópa en valið verður í þá með slembiúrtaki. Foreldrum verður að sjálfsögðu kynnt fyrirfram ef börn þeirra lenda í slíku úrtaki.

Matsaðilar skoða auk þess öll möguleg gögn um skólann, bæði á heimasíðu og gögn sem þeir fá send rafrænt frá skólanum, samræmd könnunarpróf og aðrar kannanir og hvaðeina sem getur varpað ljósi á okkar skólastarf.  Matinu er ætlað að vera leiðbeinandi og framfaramiðað. Sérstaklega er hugað að því sem er framúrskarandi gott og öðrum til eftirbreytni en að sjálfsögðu er matið líka umbótamiðað og hugsað til að styrkja okkar ágæta skólastarf þegar til lengri tíma er litið.

Á hverju ári eru nokkrir grunnskólar (og raunar leik- og framhaldsskólar líka) metnir með ytra mati og gert ráð fyrir að innan fárra ára hafi allir grunnskólar landsins farið í gegnum sambærilegt mat og þannig þróist þetta sem sjálfsagður og eðlilegur hluti skólastarfs. Þetta er samstarfsverkefni mennta- og menningarmálaráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga en það er Menntamálastofnun sem sér um framkvæmdina.

Matsaðilarnir sem koma til okkar heita Birna Sigurjónsdóttir og Svanhildur M. Ólafsdóttir og væntum við góðs samstarfs. Ef foreldrar óska eftir geta þeir haft beint samband við Birnu í gegnum netfangið: skogarsel@simnet.is.

Nánari upplýsingar um ytra mat Menntamálastofnunar má lesa á vef MMS: https://mms.is/ytra-mat-skola-3

Til baka
English
Hafðu samband