Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

9. bekkur í leikhúsferð

21.11.2011 11:42
Í morgun fóru allir nemendur í 9. bekk í leikhúsferð. Haldið var í Kassann í Þjóðleikhúsinu að sjá sýninguna „Hvað ef?“ Sýningin er mikilvægt innlegg í forvarnarfræðslu Garðaskóla og var ánægjulegt að sjá hvað nemendur voru áhugasamir og spurðu góðra spurninga í lok sýningarinnar. Eins og svo oft áður voru nemendur skólans til fyrirmyndar í allri framkomu og hegðun.

Á heimasíðu sýningarinnar „Hvað ef?“ má sjá eftirfarandi upplýsingar um sýninguna:

Í október 2005 var í Hafnarfjarðarleikhúsi frumsýnt verkið HVAÐ EF, í verkinu er á skemmtilegan og uppbyggjandi hátt settar fram upplýsingar um hættur fíkniefna og afleiðingar af notkun þeirra auk þess er fjallað um ýmsa fylgifiska fíknar eins og einelti, sjálfsmorð, ótímabærar þunganir og þunglyndi. Frá frumsýningu og fram á daginn í dag hafa verið sýndar 65 sýningar fyrir 10.000 ungmenni og 1.500 foreldra.

Í sýningunni er notast var við leik, söng, ljóð og tónlist til fræðslu á vímuefnavanda sem steðjar að ungu fólki og á mjög nýstárlegan og skemmtilegan hátt farið yfir kaldar staðreyndir varðandi neyslu vímuefna. Unglingum er sýnt fram á að þeir hafa val og að margar saklausar ákvarðanir geta haft alvarlegar afleiðingar í för með sér. Það að reykja eina hasspípu eða vera í félagskap þeirra sem leggja stund á fíkniefnaneyslu getur hrundið af stað dapurlegri atburðarás. Það að segja já við E-pillu getur verið fyrsta skrefið á langri og miður fallegri ævisögu.

(sjá nánar á http://www.540floors.com/hvadef/um-hvad-ef

Til baka
English
Hafðu samband