Ráðgjöf um vinnubrögð og námstækni
Markmið fræðslu og ráðgjafar í námstækni er að nemendur kynnist hugsun, viðhorfum, námsaðferðum og námsvenjum sem rannsóknir og reynsla hafa sýnt að eru árangursríkar.
Til að ráðgjöf í námstækni nýtist nemanda er mikilvægt að hann vilji sjálfur breyta eða bæta námsaðferðir og námsvenjur sínar.
Námsráðgjafi aðstoðar nemendur m.a. við:
- að skoða og meta eigin námsaðferðir og námsvenjur
- skipulagningu á námi
- minnistækni
- vinnulag í einstökum námsgreinum
- skipulagningu á prófundirbúningi og próftöku