Náms- og starfsráðgjöf
Náms- og starfsráðgjöf er fræðsla eða ráðgjöf sem veitt er einstaklingi eða hópi við val á námsleiðum eða störfum.
Ráðgjöfin miðar að því að nemendur efli og þroski þekkingu á sjálfum sér, námsleiðum, störfum og atvinnulífi til að auðvelda ákvörðun um nám eða starf að loknum grunnskóla.
Aðstoð námsráðgjafa felst m.a. í:
-
viðtölum
-
upplýsingum og upplýsingaöflun um skóla, nám, störf og atvinnulíf
-
könnun á áhugasviðum, gildismati, hæfileikum o.fl.
-
að kenna leikni við ákvarðanatöku
-
að kunna að afla sér upplýsinga sem nýtast við val á námi eða starfi
Hér er að finna upplýsingar um nám á framhaldsskólastigi og innritun.