Foreldrafélag Garðaskóla
2. fundur stjórnar, 28.9.2011 18:00
Dagskrá: Undirbúa fund með bekkjarfulltrúum. Ræða framkvæmd foreldrarölts. Grunnstoðir.
Mætt: Steinunn, Ágústa, Kristbjörg, Björn
Spjall við Brynhildi skólastjóra.
Erum komin með lista af bekkjarfulltrúum. Þurfum að halda fund með þeim. Efni þar: Almenn kynning á foreldrafélagi, foreldrarölt, Garðalundur, maturinn. Líkleg tímasetning þri 11.okt, 20-22.
Fundur matarnefndar á morgun með birgja.
Kristbjörg ræddi um fund hjá svæðaráði/grunnstoðir. Það vantar einn fulltrúa í viðbót frá Garðaskóla.
Spjall. Foreldrar mættu vera sýnilegri í skólastarfinu og skapa þarf viðburði sem hvetur foreldra til að mæta í skólann. Bekkjarskemmtanir hafa náð fótfestu í 8. bekk sem tækifæri fyrir foreldra til að koma í skólann og hitta aðra foreldra. Þá eru fastir viðburðir í 10. bekk þar sem foreldrar mæta í skólann ásamt börnum sínum. Það vantar hins vegar að skapa hefð í 9. bekk þar sem foreldrar koma í skólann ásamt börnum sínum.
Fundi slitið 19:30
Næsti fundur verður 24. október.