Skólaráð er afar mikilvægur lögboðinn vettvangur foreldra til að koma skoðunum sínum á skólastarfi á framfæri við skólastjórnendur grunnskóla.
Skipan skólaráðs 2021 - 2022
Skólastjóri: Jóhann Skagfjörð Magnússon
Aðstoðarskólastjóri: Ásta Huld Henrysdóttir
Fulltrúar nemenda: Ísabella María og Alexander Dhan
Fulltrúar foreldra foreldra: Anna V. Kristinsdóttir og Nanna Ósk Jónsdóttir
Fulltrúar kennara: Anna Lena Halldórsdóttir og Rúna Björk Þorsteinsdóttir
Fulltrúi annarra starfsmanna: Óskar Björnsson
Fulltrúi grenndarsamfélags: John Friðrik Bond
----------------------------------------------------------------------
REGLUGERÐ um skólaráð við grunnskóla |
|
1. gr. Hlutverk og skipan Við grunnskóla skal starfa skólaráð sem er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald. Skólastjóri hefur forgöngu um stofnun skólaráðs. Hann situr í skólaráði og stýrir starfi þess. Auk skólastjóra sitja í skólaráði tveir fulltrúar foreldra, tveir fulltrúar kennara, einn fulltrúi annars starfsfólks skólans, tveir fulltrúar nemenda og einn fulltrúi grenndarsamfélags eða viðbótarfulltrúi úr hópi foreldra valinn af öðrum fulltrúum skólaráðs. Staðgengill skólastjóra stýrir skólaráði í forföllum skólastjóra. 2. gr. Verkefni Skólaráð tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans í samræmi við stefnu sveitarfélags um skólahald. Skólaráð:
Skólaráð fjallar ekki um málefni einstakra nemenda, foreldra eða starfsfólks skóla. 3. gr. Kosning Skólaráð skal skipað níu einstaklingum til tveggja ára í senn. Miðað skal við að skipað sé í ráðið í upphafi skólaárs fyrir lok septembermánaðar. Kosningum skal haga á eftirfarandi hátt:
Varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Varamenn geta tekið sæti í skólaráði á einstökum fundum í forföllum aðalmanns. Varamaður tekur fast sæti við varanleg forföll eða missi kjörgengis aðalmanns, nema nýr sé kjörinn eða valinn í hans stað. Fulltrúi í skólaráði missir hæfi sitt til setu í ráðinu ef tengsl hans við skólann rofna. 4. gr. Starfsáætlun Skólastjóri stýrir starfi skólaráðs og ber ábyrgð á stofnun þess. Vinnulag og starfshættir skólaráðs skulu m.a. taka mið af stærð skóla, fjölda árganga og öðrum einkennum hans. Skólaráð skal setja sér starfsáætlun til eins skólaárs í senn, m.a. um tíðni funda, boðun þeirra og undirbúning. Skólastjóri boðar reglulega til funda. Skólaráð skal að lágmarki halda einn opinn fund á ári um málefni skólans fyrir aðila skólasamfélagsins. Skólaráð starfar á starfstíma skóla en heimilt er að kalla það saman á öðrum tíma beri brýna nauðsyn til. Skylt er að kalla saman fund ef þrír eða fleiri skólaráðsmenn óska þess. Halda skal gerðabók um skólaráðsfundi og skulu fundargerðir liggja frammi í skólanum og á vef skóla. Skólaráð getur sett sér nánari starfsreglur. 5. gr. Þátttaka nemenda í skólaráði Fulltrúar nemenda skulu ávallt eiga þess kost að taka þátt í starfi skólaráðs þegar fjallað er um velferðar- og hagsmunamál nemenda, árlega starfsáætlun skóla, aðrar áætlanir er varða skólahaldið og um meiri háttar breytingar á skólahaldi og starfsemi skóla. Skólastjóri getur, að höfðu samráði við nemendur og aðra fulltrúa í skólaráði, leyst fulltrúa nemenda undan setu í skólaráði, t.d. þegar mál eru á vinnslustigi og þegar verið er að fjalla um mál þar sem nemendur telja sig ekki hafa forsendur til þátttöku. Fulltrúar nemenda hafa þó ávallt rétt á að taka þátt í starfi skólaráðs. Fulltrúar foreldra í skólaráði gæta hagsmuna nemenda þegar þeir, vegna aldurs eða þroska, geta ekki tekið þátt í störfum skólaráðs, sbr. 13. gr. laga nr. 91/2008 um grunnskóla og 1. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Skólaráð getur vísað erindum sem það hefur fjallað um, ásamt umsögn, til skólanefndar, foreldrafélags, starfsmannafundar eða nemendafélags. 6. gr. Skólaráð í samreknum skóla Sveitarstjórn getur ákveðið að skólaráð grunnskóla og foreldraráð leikskóla starfi sameiginlega í einu ráði í samreknum leik- og grunnskóla, skv. 45. gr. laga um grunnskóla. Miða skal við að fulltrúar nemenda komi úr efstu bekkjum grunnskólans og að fulltrúar foreldra og kennara komi frá báðum skólastigum. Ákvæði þetta gildir einnig um skóla þar sem tvö eða fleiri sveitarfélög hafa samvinnu um rekstur hans, sbr. 1. mgr. 45. gr. laga nr. 91/2008 um grunnskóla. 7. gr. Gildistaka Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 8. gr. laga nr. 91/2008 um grunnskóla, öðlast þegar gildi. Menntamálaráðuneytinu, 4. desember 2008. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Guðmundur Árnason. |
|
B-deild - Útgáfud.: 22. desember 2008 |