Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Jólaskemmtun

20.12.2017

Miðvikudagurinn 20. desember er síðasti skóladagur í Garðaskóla fyrir jólaleyfi. Nemendur mæta í umsjónarstofur eftir skipulagi og fara svo saman á sal þar sem boðið verður upp á heitt súkkulaði og smákökur og dansað í kringum jólatréð.

kl. 8.30 8. bekkur: Stofujól með umsjónarkennara í klukkutíma, svo farið á sal
kl. 9.00 9. bekkur: Stofujól með umsjónarkennara í klukkutíma, svo farið á sal
kl. 9.30 10. bekkur: Stofujól með umsjónarkennara í klukkutíma, svo farið á sal  

Skrifstofa Garðaskóla er lokuð frá og með 21. desember og opnar aftur kl. 7:30 miðvikudaginn 3. janúar, þegar kennsla hefst samkvæmt stundaskrá kl. 9:25. Umsjón fellur niður hjá öllum árgöngum.

Til baka
English
Hafðu samband