Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Skólahlaup og vorhátíð

05.06.2015
Skólahlaup og vorhátíð

Þriðjudaginn 9. júní taka allir nemendur og starfsmenn þátt í skólahlaupi Garðaskóla. Viðburðurinn er skipulagður af heilsueflingarnefnd skólans.

Nemendur mæta á eftirfarandi tímum:

  • 8. bekkur kl. 8.10
  • 9. bekkur kl. 8.25
  • 10. bekkur kl. 8.45

Verðlaun verða veitt fyrir þrjár fyrstu stúlkur og þrjá fyrstu drengi í hverjum árgangi fyrir sig.   

Nemendur eiga að mæta í íþróttafötum og vera tilbúnir í hlaupið. Í boði er að hlaupa, skokka eða  ganga.

Sturtur á íþróttagangi íþróttahússins verða opnar fyrir nemendur eftir hlaupið. Muna eftir handklæði og fötum til skiptanna.

Að loknu hlaupinu hitta nemendur umsjónarkennara, þrífa skápa og undirbúa vorhátíð. Á hátíðinni verða 10. bekkingar kvaddir og skemmtidagskrá verður í boði auk þess sem seldar verða grillaðar pylsur og gos. 

Til baka
English
Hafðu samband