Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Í hverjum grunnskóla skal starfa forvarnarteymi sem hefur eftirfarandi hlutverk:

  1. Teymið á að tryggja kennslu í öllum árgöngum um kynbundið og kynferðislegt ofbeldi og áreitni sem hæfir aldri og þroska nemenda. 
  2. Teymið skal leitast við að tryggja samhæfð viðbrögð starfsfólks með tilliti til ólíkra hópa og ólíkra einstaklinga í tilfellum þar sem börn reyna að greina frá ofbeldi og áreitni. Sérstaklega verði horft eftir merkjum um slíkt í tengslum við umfjöllun sem tengist forvörnum gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreiti.
  3. Teymið skal vera kennurum og öðru starfsfólki til stuðnings og ráðgjafar varðandi fræðslu og umræðu um kynferðislegt og kynbundið ofbeldi og áreitni og sjá um að tryggja viðunandi þekkingu og þjálfun starsfólks.
  4. Ábyrgðaraðilar teymisins eru skóalstjóri og skólaskrifstofa sveitarfélagsins. Skólaskrifstofur skulu fylgja því eftir að innan hvers skóla verði starfrækt forvarnarteymi.
Forvarnarteymi Garðaskóla er þannig skipað*:

Jóhann Skagfjörð, skólastjóri
Erla Karlsdóttir, jafnréttiskennari
Aldís Pálsdóttir, skólahjúkrunarfræðingur
Skólasálfræðingur

*Enn á eftir að skipa fjóra aðila í teymið.

English
Hafðu samband