Valgreinar
Valgreinabæklingurinn 2023 - 2024 er rafrænn og má finna hér. Valið fer fram á Innu og er hægt að nálgast leiðbeiningar um valið á heimasíðu Garðaskóla. Innskráning á Innu fer fram með Íslykli eða rafrænum skilríkjum. Einnig hafa einhverjir nemendur tengt @gbrskoli.is aðgang sinn við Innu og geta nýtt hann til að skrá sig inn.
Í 9. og 10. bekk gefst nemendum kostur á að velja sér valgreinar. Tilgangurinn með auknu valfrelsi nemenda er að laga námið sem mest að þörfum einstaklingsins og miða við áhugasvið og framtíðaráform hans. Val nemenda fer fram í samvinnu við foreldra, kennara og námsráðgjafa.
Framboð valgreina er mismunandi á ári hverju. Nemendur velja þær greinar sem þeir hafa mestan áhuga á og síðan aðrar greinar til vara. Því miður er ekki hægt að verða við óskum allra en takmarkaður fjöldi kemst í hvern hóp. Mjög mikilvægt er að val nemenda sé vel ígrundað svo ekki þurfi að að gera breytingar eftir að búið er að útbúa stundatöflu fyrir hvern og einn.
Nemendur og foreldrar eru hvattir til þess að lesa vel valgreinabæklinginn og kynna sér upplýsingar um námsbrautir og inntökuskilyrði í framhaldsskóla á Menntagáttinni: https://www.menntagatt.is/
Námsráðgjafar veita ráðgjöf um námsval og einnig geta kennarar og stjórnendur aðstoðað nemendur og foreldra.
Undanþága frá valgrein
Samkvæmt Aðalnámskrá grunnskóla er skólastjóra heimilt að meta þátttöku í atvinnulífi, félagslífi, íþróttum eða skipulögðu sjálfboðastarfi sem nám í valgreinum á unglingastigi. Í Garðaskóla geta nemendur óskað eftir slíku svigrúmi með því að velja valfagið TÓM (3101) í Innu og jafngildir það einni valstund á viku. Til staðfestingar þurfa nemendur að auki að skila inn umsóknareyðublaði sem nálgast má á heimasíðu skólans. Það þarf að berast skólanum fyrir 6. september 2020. Áður en umsóknareyðublaðinu er skilað til deildarstjóra í Garðaskóla er nauðsynlegt að starfsmaður viðkomandi félags kvitti á umsóknareyðublaðið fyrir því starfi sem unnið er og staðfesti þar með ábyrgð sína á því.