Kynning á góðvildarverkefni 8. bekkinga
23.04.2013
Senn hefst góðvildarverkefni 8. bekkjar Garðaskóla í samstarfi foreldra og skólans. Við boðum þess vegna til sameiginlegrar „upphitunar“ foreldra og barna í 8. bekk Garðaskóla þriðjudagskvöldið 23. apríl kl. 18-20 á sal Flataskóla.
Hugmyndin er að kalla saman árganginn eina góða kvöldstund - á vegum foreldra en á vettvangi skólans - kynna góðgerðarverkefnið og sameina börn og foreldra í örfyrirlestrum, fæðu og fjöri.
- Staður: Flataskóli (Garðaskóli er frátekinn í leikritið „Ghost“ – en Brynhildur hefur þegar fengið Flataskóla „að láni“ umrætt kvöld)
- Stund: Þriðjudaginn 23. apríl milli 18.00 og 20.00
- Stemning: Gleði og gaman og léttar veitingar (hver kemur með smá hollustu)
Dagskrá (10 mínútna örfyrirlestrar):
- Af lífsins gæðum, lífsins gjöfum og Beoncé – Guðrún
- Bakað fyrir Fjölskylduhjálp – verkefnið kynnt og umræður - María
- Svipmynd af námsefni í Lífsleikni - Ingimar
- Fjölskylduhjálp Íslands – stefna, starfsemi og staða - NN
- Ungt fólk og sjálfboðaliðastarf – Ragný
- Tónlist – Hallfríður og Ármann
Hlökkum til að sjá ykkur öll!
Guðrún, María og Hallfríður (8. IW) og bekkjarfulltrúar