Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Verum saman á vaktinni - fræðslukvöld

21.01.2020
VERUM SAMAN Á VAKTINNI - ,,Það þarf heilt þorp til að ala upp barn“ er yfirskrift fræðslukvölds um áhættuhegðun barna og unglinga og forvarnir sem verður haldið þriðjudaginn 21. janúar nk. kl. 20:00-22:15 í hátíðarsal Sjálandsskóla við Löngulínu. Fræðslukvöldið er haldið á vegum íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar, Grunnstoðar Garðabæjar (fulltrúa foreldrafélaga) og grunnskóla Garðabæjar og er fyrir foreldra og íbúa í Garðabæ. Allir eru velkomnir að hlýða á fróðleg erindi sem á erindi við okkur öll sem samfélag.
Til baka
English
Hafðu samband