Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar
19.09.2022 09:29
Næstkomandi fimmtudag kl. 8:10 óskum við eftir nærveru alls forráðafólks á námskynningum í Garðaskóla. Forráðafólk mætir kl. 8:10 í umsjónarstofu síns barns, hittir umsjónarkennara og á með honum góða og fræðandi stund. Í kjölfarið gefst forráðafólki tækifæri til að skoða námsefni hverrar fagdeildar í Gryfjunni. Tíminn hjá umsjónarkennara er að hámarki 40 mínútur og dagskráin í Gryfjunni stendur til 9:05. Athugið að nemendur eiga ekki að mæta á námskynningar heldur mæta þau í skólann samkvæmt stundaskrá kl. 9:25.
Til baka
English
Hafðu samband