Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Upphaf skólaársins 2022-2023

12.08.2022 09:38

Skólaárið 2022-2023 í Garðaskóla hefst þriðjudaginn 23. ágúst.

Nemendur í 8. bekk eiga að mæta í Gryfjuna kl. 9:00. Að lokinn skólasetningu halda nemendur í sína umsjónarstofu og verða í dagskrá með sínum umsjónarkennara þar til skóladegi lýkur kl. 12:00. Við hvetjum forráðafólk til að fylgja sínu barni á skólasetninguna. Eftir að nemendur hafa verið lesnir upp í bekki fá foreldrar stutta fræðslu frá skólastjórnendum. Áætlað er að kynningu fyrir foreldra verið lokið kl. 9:40.

Nemendur í 9. bekk eiga að mæta í Gryfjuna kl. 10:00. Að skólasetningu lokinni halda nemendur í sína umsjónarstofu. Skóladegi lýkur kl. 11:00.

Nemendur í 10. bekk eiga að mæta í Gryfjuna kl. 11:00. Að skólasetningu lokinni halda nemendur í sína umsjónarstofu. Skóladegi lýkur kl. 12:00.

- - - - - -

Miðvikudaginn 24. ágúst eiga allir nemendur að mæta í skólann í sína umsjónarstofu kl. 8:30. Skóladegi lýkur kl. 13:30.

- - - - - -

Fimmtudaginn 25. ágúst hefst svo kennsla samkvæmt stundaskrá.

Til baka
English
Hafðu samband