Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar
23.03.2021 15:28
Nemendur í Garðaskola sigra Stíl 2021

 

 

Þær Ragnhildur Elva Kjartansdóttir, Stefanía Þóra Ólafsdóttir, Iðunn Björnsdóttir og Arna Sara Guðmundsdóttir, allar í 8. bekk í Garðaskóla, tóku þátt í Stíl - Hönnunarkeppni unga fólksins sem haldin var laugardaginn 20. mars síðastliðinn. Þema keppninnar í ár var SIRKUS og gerðu stelpurnar sér lítið fyrir og báru sigur úr býtum með vel útfærðri hugmynd sinni sem var innblásin af vintage/1930 sirkus trúði. Stórglæsilega búninginn hönnuðu þær sjálfar og saumuðu ásamt því að búa til alla fylgihluti og kerru. Leiðbeinandi þeirra var Eyrún Birna Jónsdóttir textílkennari við Garðaskóla.


Garðaskóli og Garðalundur óska keppendum og leiðbeinanda innilega til hamingju.

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband