Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Val 8. og 9. bekkinga fyrir skólaárið 2021-2022

04.03.2021 13:54

Frá og með fimmtudeginum 4. mars geta nemendur í 8. og 9. bekk farið inn í Innu og merkt við þá valáfanga sem þeir hafa mestan áhuga á að taka þátt í á næsta skólaári. Valið stendur opið til og með þriðjudeginum 9. mars næstkomandi.

Lýsingar á valgreinum næsta skólaárs má finna á vef skólansÞar má einnig finna leiðbeiningar um hvernig skal standa að valinu í Innu. Athugið að nemendur í tilvonandi 10. bekk eru beðnir um að tilgreina, í forgangsröð, 8 valgreinar en nemendur í tilvonandi 9. bekk eiga að velja 10 valgreinar. Mikilvægt er að a.m.k. tvær af valgreinunum sé list- eða verkgrein (sjá nánar á um bundið val á valgreinasíðunni).

Nemendur geta hakað við valáfanga (TÓM3101/3102) sem ígildi undanþágu vegna tómstundastarfs utan skóla. Auk þess að sækja um valáfangann þarf nemandi að skila inn undirrituðu staðfestingarblaði um þátttöku í skipulögðu tómstundastarfi utan skóla. Blaðið verður kynnt betur þegar nemendur koma til starfa í lok ágúst. 

Til baka
English
Hafðu samband