Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Hátíðarmatur 10. desember 2020

03.12.2020 13:54

Fimmtudaginn 10. desember verður boðið upp á hátíðarmáltíð í skólanum fyrir alla áskrifendur.  Í ár bjóðum við upp á hunangsristaðar kalkúnabringur, hátíðarmeðlæti og sósu ásamt íssblómi í eftirrétt. Veganrétturinn verður Oumph Wellington ásamt hátíðarmeðlæti og sósu og ís í eftirrétt

Þeir sem ekki eru í áskrift en óska eftir að taka þátt í hátíðarmáltíðinni geta keypt sérstaka matarmiða í mötuneyti skólans frá 2.-8.desember milli kl.9-11. Miðinn kostar 800 kr. og aðeins er hægt að greiða með peningum.

Nemendur sem eiga venjulega matarmiða geta skipt miðunum út í mötuneyti skólans fyrir hátíðarmiða.

Til baka
English
Hafðu samband