Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Skólasetning Garðaskóla 23. ágúst

13.08.2019 20:50
Skólasetning Garðaskóla 23. ágúst

Skólasetning Garðaskóla verður föstudaginn 23. ágúst. Í kjölfarið tekur við fyrsti skóladagurinn hjá öllum nemendum.

Nemendur í 9. og 10. bekk eiga að mæta kl. 8:10 á sal skólans. Að lokinni skólasetningu halda þeir í sína umsjónarstofu. Skóladegi lýkur kl. 14:00.

Nemendur í 8. bekk og forráðamenn eiga að mæta kl. 8:30 á sal skólans á stuttan kynningarfund. Þar munu stjórnendur skólans og umsjónarkennarar taka á móti þeim, kynna sig og fara yfir mikilvæg atriði í skólastarfinu. Að því loknu hefja nemendur sinn skóladag með umsjónarkennara. Skóladegi lýkur kl. 14:00. Þennan fyrsta skóladag munu nemendur m.a. í 8. bekk fara í myndatöku fyrir Innu.

Námsgögn verða afhent eftir þörfum fyrstu skóladagana. Þar er um að ræða pappír, möppur og ritföng. Nemendur þurfa sjálfir að koma skólatösku undir námsbækur, pennaveski fyrir ritföng auk fatnaðar fyrir íþrótta- og sundtíma. Eldri nemendur nýta áfram þá vasareikna sem þeir hafa haft en nemendur í 8. bekk fá vasareikna afhenta í stærðfræðitímum.

Athugið að Skólamatur mun afgreiða heitan mat frá og með 23. ágúst. Forráðamenn þurfa að skrá nemendur í mataráskrift á www.skolamatur.is.

Við hlökkum til komandi skólaárs með ykkur!

Til baka
English
Hafðu samband