Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Foreldraspjall í 8. og 9. bekk í kvöld

03.05.2018 12:04
Foreldraspjall í 8. og 9. bekk í kvöld

Foreldrafélag Garðaskóla stendur fyrir foreldraspjalli. Markmið fundanna er að hvetja foreldra til að ræða saman um skólann, forvarnir, heilsu og samskipti nemenda.

Fundirnir eru haldnir með þjóðfundasniði þar sem fimm umræðuefni eru tekin fyrir og fólk flakkar á milli borða og svarar nokkrum spurningum og ræðir málin.

Í 8. og 9. bekk er áhersla lögð á það hvernig foreldrar geta verið samstilltari um ýmis mál sem snúa að heilsu, samskiptum og umferðaröryggi. Að auki verða hugmyndir um rafrænan útivistartíma ræddar. Fundur foreldra nemenda í 8. og 9. bekk er fimmtudaginn 3. maí og stendur frá kl. 20.00-21.30.

Foreldrafélagið og skólinn binda vonir við að þátttaka verði góð og að loknum þessum fundum verða hugmyndir foreldra teknar saman og sendar öllum foreldrum.

Til baka
English
Hafðu samband