Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Valgreinakynningar miðvikudaginn 14. febrúar

12.02.2018 09:33
Valgreinakynningar miðvikudaginn 14. febrúar

Miðvikudaginn 14. febrúar næstkomandi er nemendum í 8. og 9. bekk ásamt forráðamönnum boðið að koma og kynna sér þær valgreinar sem verða í boði skólaárið 2018-2019. Hægt verður að ræða við kennara og fá nánari upplýsingar um námið en kynningarnar fara fram á báðum hæðum skólans kl. 8:10-9:05.

Upplýsingar um valgreinar verða birtar á vef Garðaskóla þriðjudaginn 13. febrúar en valið sjálft fer fram í Innu og verður opnað fyrir það á www.nam.inna.is 14. febrúar. Lögum samkvæmt á fjöldi kennslustunda í töflu að vera 24-25 á viku auk yndislesturs og umsjónartíma, miðað við 55 mínútna kennslustundir.

Leiðbeiningar um val í Innu má finna á heimasíðu GarðaskólaNemendur eiga að þekkja lykilorð sitt að Innu. Ef það hefur glatast má hafa samband við kennsluráðgjafa (hildurr@gardaskoli.is).

Athugið að allir nemendur í 8. og 9. bekk eiga að vera búnir að velja fyrir mánudaginn 26. febrúar.

Til baka
English
Hafðu samband