Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar
29.01.2018 11:33
Opnað fyrir umsóknir 9. bekkinga í nemendaskipti í Evrópusamstarfsverkefni Garðaskóla

Um margra ára skeið hefur Garðaskóli tekið þátt í sameiginlegum verkefnum nokkurra Evrópulanda með styrk frá Evrópusambandinu. Verkefnin hafa verið margvísleg og hafa bæði nemendur og kennarar skólans tekið þátt. Nokkur lönd hafa komið að samstarfinu og afraksturinn er mjög fjölbreytilegur. Alltaf hefur þó verið haft að leiðarljósi að auka skilning og virðingu fyrir menningu og margbreytileika annarra Evrópuþjóða.

Mikilvægur hluti af hverju samstarfsverkefni eru gagnkvæmar nemendaheimsóknir. Þar hefur nemendum Garðaskóla og hinna þátttökuskólanna gefist tækifæri til þess að heimsækja jafnaldra sína, setjast á skólabekk erlendis, njóta gestrisni heimamanna og fá innsýn í menningu og siði annarrar Evrópuþjóðar. Vinnutungumálið í þessum samskiptum er enska.

Í haust hlaut Garðaskóli styrk til nýs Erasmus+ verkefnis og eru samstarfsskólarnir frá Þýskalandi, Ítalíu, Spáni, Finnlandi og Grikklandi. Verkefnið sem unnið verður 2017-2019 nefnist „Art Ventures in EUROPE - in search of common roots and perspectives” og felst í því að hver skóli velur ákveðið menningarsögulegt viðfangsefni og setur upp leiksýningu eða gerir stuttmynd byggða á verkinu. Í íslenska hluta verkefnisins kynnum við okkur Þrymskviðu, söguna á bakvið hana og norræna goðafræði . Nemendur skrifa svo handrit og gera stuttmynd þar sem að Þrymskviða er færð til nútímans. Hinn þáttur verkefnisins eru samskipti á netinu (Skype) og gagnkvæmar vikulangar nemendaheimsóknir milli nemenda í Garðaskóla annars vegar og nemenda samstarfsskólanna hinsvegar.

19 nemendum í 9. bekk stendur til boða að taka þátt í verkefninu. Þeir þurfa að vera tilbúnir til að taka þátt í verkefnavinnunni utan hefðbundins skólatíma og vera í samskiptum við og taka á móti erlendum jafnöldrum sínum. Á þessu skólaári eru 12 nemendur skráðir í valfagið Erasmus+ - nemandaskipti og hafa verið að vinna í verkefninu frá því í haust. Þessir nemendur njóta forgangs í vali á ferðum.

Nemendaheimsóknir eru sem hér segir:

23. – 30. apríl 2018                      Nemendur frá öllum skólunum heimsækja Garðabæ

 8. – 14. október 2018                 2 nemendur úr Garðaskóla heimsækja Eretria í Grikklandi

19. – 26. nóvember 2018            4 nemendur úr Garðaskóla heimsækja Lleida á Spáni

14. – 20. janúar 2019                   3 nemendur úr Garðaskóla heimsækja Lahti í Finnland

 1. – 8. apríl 2019                          2 nemendur úr Garðaskóla heimsækja Bari á Ítalíu

6. – 13. maí 2019                          8 nemendur úr Garðaskóla heimsækja Teningen í Þýskalandi

Nú auglýsum við eftir nemendum til að fylla þau pláss í verkefninu sem ennþá eru óskipuð. Þeim sem hafa áhuga á að taka þátt í Erasmus+ verkefninu er bent á að sækja um á heimasíðu skólans og skrifa stutta greinargerð með rökstuðningi þar sem fram kemur af hverju þeir hafa áhuga á verkefninu. Sérstök valnefnd fer yfir umsóknirnar og þar verður meðal annars tekið tillit til ástundunar, vinnusemi og enskukunnáttu. Umsóknarfrestur er til miðvikudagsins 6. febrúar  2018.

Nánari upplýsingar veitir Halla Thorlacius, netfang: halla@gardaskoli.is

Til baka
English
Hafðu samband