Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar
28.06.2017 15:51
Upphaf skólastarfs haustið 2017

Forráðamönnum nemenda í 8. bekk er boðið til kynningarfundar á sal Garðaskóla mánudaginn 21. ágúst kl. 17.00. Stjórnendur skólans segja frá starfinu og umsjónarkennarar taka á móti forráðamönnum í heimastofum umsjónarbekkja.

Fyrsti skóladagur haustannar 2017 er þriðjudagurinn 22. ágúst. Nemendur mæta á sal skólans á eftirfarandi tímum:

  • 10. bekkur kl. 8.30
  • 9. bekkur kl. 9.00
  • 8. bekkur kl. 9.30

Nemendur þurfa að huga að innkaupum á ritföngum við skólabyrjun. Innkaupalista má nálgast á vef skólans: http://gardaskoli.is/namid/innkaupalistar/

Skólamatur ehf. rekur þjónustu í matsölu Garðaskóla. Nemendur sem vilja vera í áskrift að heitum mat sækja um hana á vef Skólamatar: http://www.skolamatur.is/. Opnað verður fyrir áskrift í ágúst, þegar skólinn hefur sent Skólamat lista yfir umsjónarbekki.

Starfsfólk Garðaskóla hlakkar til samstarfsins á komandi skólaári.
Til baka
English
Hafðu samband