Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Skíðaferð 8. bekkjar í Bláfjöll

09.03.2017 08:00
Skíðaferð 8. bekkjar í Bláfjöll

Loksins kom snjórinn og þá er um að gera að skella sér á skíði. Meirihluti 8. bekkjar fjölmennti í Bláfjöll 7. mars síðastliðinn í frábæru veðri. Allt gekk vel og kennarar sammála um að nemendur hafi staðið sig með prýði. 

Helga Björnsdóttir, móðir í 8.RBÞ, mætti með myndavélina og náði frábærum myndum af nemendum og kennurum. Hægt er að sjá myndirnar á vefsíðu Helgu og þökkum við kærlega fyrir að fá að birta þær.

Til baka
English
Hafðu samband