Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Nútímadans í Garðaskóla: Umsóknarfrestur framlengdur til 3. mars

27.02.2017 23:16
Nútímadans í Garðaskóla: Umsóknarfrestur framlengdur til 3. mars

Umsóknarfrestur vegna verkefnis um nútímadans í Garðaskóla hefur verið framlengdur til lok þessarar viku.

Nemendum Garðaskóla stendur til boða að taka þátt í verkefni með þýska danskennaranum Birgit Asshoff. Birgit er nútímadansari og danshöfundur og hefur sérhæft sig í að skapa dans með almennum borgurum. Hún leggur áherslu á að leiða saman ólíka samfélagshópa og í verkefninu í Garðaskóla verða unglingar í samstarfi við eldri borgara. Hjúkrunarheimilið Ísafold er samstarfsaðili að verkefninu.

Verkefnið felst í því að 10-15 unglingar og nokkrir eldri borgarar í Garðabæ munu búa til dansverk saman. Unglingarnir munu æfa í heila viku í Garðaskóla og hluta tímans munu þeir vinna með eldri borgurunum. Hópurinn mun skapa dansverk sem sýnt verður opinberlega í lok verkefnisins.

Námskeiðið er nemendum að kostnaðarlausu, en aðeins 10-15 unglingar komast að í hópnum. Bæði strákar og stelpur eru hvött til að vera með.

Nauðsynlegt að hafa í huga áður en sótt er um:

 

Þátttakendur í dansverkefninu munu ekki taka þátt í öðru skólastarfi á meðan (síðustu skóladagar og vorferðir). Þeir þurfa að vera tilbúnir að taka þátt í sýningu á dansverkinu á opinberum stað, t.d. bókasafni eða tónleikasal.

 

Samþykki forráðamanna er nauðsynlegt, skila þarf neðsta hluta þessa blaðs á skrifstofu Garðaskóla í síðasta lagi 3. mars.

 

-

Ef aðsókn er mikil og velja þarf úr hópi umsækjenda skiptir rökstuðningur umsækjenda í umsókninni miklu máli. Skólastjóri ber ábyrgð á vali í hópinn.

 Tími og staður:

Verkefnið tekur heila skólaviku og fer fram 29. maí – 2. júní 2017, kl. 8.30-14.30 alla dagana. Þátttakendur í verkefninu taka ekki þátt í öðru skólastarfi þessa viku. Námskeiðið mun fara fram í Garðaskóla.

Nánari upplýsingar gefur Brynhildur Sigurðardóttir, skólastjóri Garðaskóla, í síma 590 2590 og netfangi brynhildur@gardaskoli.is.
Til baka
English
Hafðu samband