Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Fimleikar, jóga og slökun á Gagn og gaman dögum

07.11.2016 17:24
Fimleikar, jóga og slökun á Gagn og gaman dögum

Það var bæði mikið fjör og mikil rólegheit hjá hópnum. Dagurinn byrjaði á fjörinu í fimleikasalnum þar sem nemendur fóru á 7 stöðvar og gerðu ýmsar æfingar. Síðan var farið í speglasalinn í jóga og slökun.

Það kom mest á óvart hvað Svandís náði að svæfa marga í slökun og að Elena gæti gert arabaflikk. Hópurinn var einstaklega þægilegur og skemmtilegur.

Dagurinn endaði síðan á því að búa til myndband frá deginum sem hægt er að sjá hér að neðan.

Til baka
English
Hafðu samband