Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Garðaskóli 50 ára!

02.11.2016 13:19
Garðaskóli 50 ára!

Föstudaginn 11. nóvember næstkomandi fagnar Garðaskóli 50 ára afmæli sínu. Óhefðbundin skóladagur verður frá kl. 9:30 en aðstandendum og öðrum gestum er boðið að taka þátt opnu húsi milli kl. 13:00 og 15:00 á afmælisdaginn. Einnig verður opið hús laugardaginn 12. nóvember milli kl. 11:00 og 14:00.

Gestir munu báða dagana geta skoðað sögusýningu um skólann í formi mynda, texta og minja, auk þess sem stofur verða opnar og verk núverandi nemenda til sýnis.

Boðið verður upp á kaffi og konfekt.

Það er von starfsfólks að sem flestir fyrrverandi nemendur og starfsmenn skólans sjái sér fært að líta við og rifja upp gamlar minningar frá veru sinni í skólanum.

Til baka
English
Hafðu samband