Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar
05.09.2016 13:21
Námskynningar fyrir forráðamenn, fimmtudaginn 8. september 2016

Fimmtudaginn 8. september 2016 býður Garðaskóli forráðamönnum í heimsókn. Fagkennarar mun kynna starf vetrarins og umsjónarkennarar 9. og 10. bekkja hitta forráðamenn stuttlega. Á sal skólans verða kennarar til viðtals, sýna námsefni og kennsluáætlanir og svara fyrirspurnum.

Dagskráin er eftirfarandi:

    Forráðamenn 8. bekkinga mæta á sal kl. 8:10-9:10 
     Forráðamenn 9. bekkinga mæta í umsjónarstofur kl. 8:10 og fara svo á sal
 –     Forráðamenn 10. bekkinga mæta í umsjónarstofur kl. 8:30 og fara svo á sal

Nemendur mæta í skólann kl. 9:30 þennan dag.

Til baka
English
Hafðu samband