Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

8. bekkur á degi íslenskrar náttúru

17.09.2015 20:24
8. bekkur á degi íslenskrar náttúru8. bekkingar hófu vinnu á plöntuverkefni á degi íslenskrar náttúru miðvikudaginn 16.september sl., en verkefnið er hefðbundinn liður í byrjun vetrarstarfsins í náttúrufræði í Garðaskóla. Í tengslum við verkefnið fara nemendur í vettvangsferð um skólalóðina, að Hraunholtslæk, Vigdísarlund og út í hraun til þess að skoða þær plöntur sem þar vaxa. Flestir hópar hafa verið afar heppnir með veður í vettvangsferðinni og hafa því getað notið þess enn frekar að fara út í nærumhverfi skólans til þess að kynna sér íslenskan gróður. 
Til baka
English
Hafðu samband