Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Ber það sem eftir er - fræðsluerindi foreldrafélagsins

23.02.2015 21:16
Ber það sem eftir er - fræðsluerindi foreldrafélagsins

„Ber það sem eftir er: Um sexting, hefndarklám og netið“ er fræðsla fyrir foreldra um öryggi barna í stafrænum samskiptum. Foreldrafélag Garðaskóla býður til viðburðarins miðvikudaginn 4. mars kl. 20 í stofu 301 í Garðaskóla.

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum ganga nektarmyndir af íslenskum börnum manna á milli á netinu, en lögreglunni hefur reynst erfitt að bregðast við vandamálinu. Dreifingin er stjórnlaus og netið gleymir engu. Sexting (að skiptast á nektarmyndum) meðal barna og unglinga eykur á vandann. Rík þörf er fyrir vitundarvakningu – og upplýstir foreldrar eru besta forvörnin. Ef ekkert er aðhafst gætu fleiri börn lent í því að vera ber það sem eftir er á netinu.
 
Aðgangur er ókeypis og allir foreldrar eru hvattir til að mæta á fyrirlesturinn enda mikilvægt að kynna sér áskoranirnar sem fylgja tækninýjungum og fá góð ráð um hvernig eigi að ræða þessi mál við börn og ungmenni. Fræðslan er í höndum Þórdísar Elvu Þorvaldsdóttur, höfundar verðlaunamyndanna „Fáðu já!“ og „Stattu með þér!“ sem notaðar eru í kennslu í grunnskólum landsins. Styrktaraðili átaksins er Vodafone.

Nánari upplýsingar á vefnum: http://www.vodafone.is/samskipti/heilraedi/sexting/

Til baka
English
Hafðu samband