Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Verðlaunaslagorð frá degi gegn einelti

16.12.2013 12:45
Verðlaunaslagorð frá degi gegn eineltiÍ lok síðustu viku voru afhent verðlaun fyrir fimm bestu slagorðin í samkeppni um slagorð gegn einelti. Samkeppnin fór fram þann 8. nóvember sl. en sá dagur er tileinkaður baráttu gegn einelti. Mörg slagorð komu til greina og átti dómnefnd erfitt verkefni fyrir höndum að velja þau fimm sem verðlaunuð voru. Hlutskörpust voru:

  • „Allir saman, enginn einn.“
    Höfundar eru Alexander Fannar, Jakob Freyr, Sólon Baldvin og Vignir Snær í 9. KSS
  • „Einelti er bannað, gerið eitthvað annað.“
    Höfundar eru Íva Marín og Ragnheiður í 10. EE
  • „Hendum einelti á haugana.“
    Höfundar eru Aníta, Anna Guðný og Emma í 9. TGB
  • „Einelti er úrelt.“
    Höfundar eru Bertha, Eydís, Hafrún Lind, Hildur Katrín, Karen H., Ólöf og Sóley 8. HT
  • „Sýnum stuðning, stoppum einelti.“
    Höfundar eru Anna-Bryndis, Anna Lena, Arey, Logey Rós og Sigrún Júlía.

Við þökkum öllum sem tóku þátt. Vel verður haldið utan um öll slagorð nemenda enda var vel vandað til verka og tóku nemendur ákveðna afstöðu gegn einelti. Slagorðin verða notuð í skólanum og hluti þeirra settur inn á heimasíðu skólans til að halda umræðunni vakandi og leyfa fleirum að njóta. 


 

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband