Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Starfsmenn í vinnuferð

19.08.2013 07:36
Mánudaginn 19. ágúst fara starfsmenn Garðaskóla í vinnuferð í Skorradal og því verður fámennt í skólahúsnæðinu. Ritari skólans svarar síma og tekur skilaboð til annarra starfsmanna.


Vinnudaginn munu starfsmenn nota í endurskoðun skólanámskrár og ber þar hæst þrjú mikilvæg verkefni:

  1. Forgangsröðun verkefna út frá SVÓT greiningu sem starfsmenn unni haustið 2012.
  2. Undirbúningur að vinnu við umhverfisstefnu skólans.
  3. Vinna að nýrri útgáfu kennsluáætlana. Nýtt form fyrir áætlanirnar var í þróun hjá kennurum síðasta vor og munu þeir taka það upp í öllum námsgreinum nú í ágúst. Í þessum kennsluáætlunum gera námsgreinar grein fyrir grunnþáttum menntunar, námsmati og fleiri atriðum sem verið er að uppfæra til samræmis við Aðalnámskrá 2011/2013.

Samstarfskveðja,

Starfsfólk Garðaskóla


Til baka
English
Hafðu samband