Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Haustfundir með foreldrum

27.08.2012 17:28
Kæru foreldrar/forráðamenn!

Foreldrum nemenda í 8.-, 9.- og 10. bekkjum er boðið á foreldrafund fimmtudaginn 30. ágúst nk. kl. 8.20 – 9.00.

Nemendur mæta í skólann kl. 9.50 eða samkvæmt stundaskrá.

Fundurinn verður í umsjónarstofu nemendans.

Umsjónarkennarar kynna skólastarfið. Þrír bekkjarfulltrúar verða valdir til að vera m.a. tengiliðir við Foreldrafélag Garðaskóla.

Þess er vænst að allir foreldrar sjái sér fært að koma á fundinn. Annars er bent á viðtalstíma umsjónarkennara.

f.h. umsjónarkennara,
deildarstjórar
Til baka
English
Hafðu samband