Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Garðaskóli hlaut verðlaun fyrir fyrirmyndarverkefni Comeniusar

26.11.2010 14:04
Garðaskóli hlaut verðlaun fyrir fyrirmyndarverkefni Comeniusar

Comenius er skólastarfshluti Menntaáætlunar Evrópusambandsins. Hlutverk þess er að efla gæðastarf í skólum og tryggja Evrópuvitund í menntun. Comenius hóf göngu sína á Íslandi árið 1995 og hefur notið mikilla vinsælda meðal kennara og starfsfólks skóla frá upphafi.
Eins og komið hefur fram á heimasíðu skólans hefur Garðaskóli verið þátttakandi í ýmsum Comenius verkefnum undanfarin áratug. Síðasta verkefnið var unnið á árunum 2008-2010 og var samvinnuverkefni Garðaskóla og skóla frá Teningen í Þýskalandi, La Broque í Frakklandi, Lahti í Finnlandi, Lleida á Spáni, Bari á Ítalíu og Tianjin í Kína.

Heiti verkefnisins var FOOD – CULTRE and HEALTH. Afrakstur þessarar samvinnu er uppskriftabókin „International Cookbook“ sem nemendur frá öllum löndunum tóku þátt í að semja. Þeir söfnuðu uppskriftum frá heimalöndum sínum, prufuðu þær í skólaeldhúsunum og í gagnkvæmum heimsóknum þeirra hjálpuðust þau að við eldamennskuna. Einnig skrifuðu þeir um skólann sinn, heimabæ og eina fæðutegund sem er einkennandi fyrir viðkomandi land út frá næringar- og hollustugildi.
25. nóv. var fagnað 15 ára afmæli Menntaáætlunar ESB og af því tilefni voru tilnefnd 10 Comenius verkefni sem „fyrirmyndaverkefni“ og síðan voru veitt sérstök verðlaun fyrir 3 bestu verkin. Þeir þættir sem meðal annars voru hafðir að leiðarljósi við val þeirra var að árangur þeirra hefði verið sannreyndur og að verkefnin skildu eitthvað eftir sig. Matreiðslubókin var í hópi fyrirmyndaverka og síðan hlaut hún 2. verðlaun sem voru afhent við skemmtilega og hátíðlega athöfn í Ráðhúsinu í Reykjavík.

Í ljósi góðrar reynslu af samvinnu skólanna var ákveðið að sækja um styrk fyrir sameiginlegu Comenius verkefni 2010 – 2012 en í millitíðinni hafði annar franskur skóli bæst í hópinn. Allir skólarnir sjö fengu styrk og hugmyndavinna er þegar hafin. Ætlunin er að búa til spil, nokkurs konar Trivial spurningaspil þar sem nemendur allra landanna búa til spurningar um lönd sín, menningu þeirra, landafræði, sögu o.fl. Einnig eru fyrirhuguð nemendaskipti á tímabilinu a.m.k. til þriggja landa, en ekki er að fullu frágengið hvert og hvenær.

Þess má geta að bókina má nálgast á heimasíðu skólans en einnig er hún til í Bókasafni Garðabæjar

Til baka
English
Hafðu samband